2017 - Askasleikir

2017 - Askasleikir

Verð 5.500 kr

Askasleikir eftir Guðmund Odd Magnússon (Godd) er Jólaórói ársins 2017. Óróanum fylgir kvæði um kappann eftir Ástu Fanneyju Sigurðardóttur.

 

 

Nótt nr. 17 

heyr! heyr! heyrist hvíslað

hann sleikir upp upp upp til agnanna

tæmir alla askana 

betri uppvaskara 

er hvergi hægt að finna

* * * Glerrósir uxu hægt  upp glugga nr. tungl

hvísluðu á milli sín í stillu 

er þetta hann? töldu niður

- daga

- mín 

- sek

 

til nætur nr. 17 

 

hvað eruð þið að gera?

spurði ég

 

við erum að fylgjast með slefi í niðdimmu

það drýpur úr vikunum

það lekur úr askinum

frystir kristöllum 

í taumunum

 

* * *

 

Norðurslæður læddust 

niður náttþak

dönsuðu ljósi á milli sín í stillu

þarna er hann!  töldu upp litina - gult 

- grænt

- blátt

 

þar til allur himininn leiftraði 

 

hvað eruð þið að gera?  spurði ég við erum að lýsa upp nóttina fyrir rúðurósir svo þær sjái  askana

galtóma

slefaða 

sleikta

ístauma

niður

hökuna 

 

svo þær sjái 

kettina

svekta

hundana 

gelta

á svein í makindum

sleikjandi ask

 

* * *

heyr! heyr! heyrist hvíslað

hann sleikir upp upp upp til agnanna

tæmir alla askana 

betri uppvaskara 

er hvergi hægt að finna

Ásta Fanney Sigurðardóttir